Jæja þá sendum við út nýtt bréf um bekkjamótið
og læt það hér inná líka svo þetta fari ekki framhjá neinum!

Kæru bekkjarfélagar!!
Nú er allt komið á fljúgandi flug í skipulagningu
bekkjarmótsins mikla!!
Dagskráin verður
stútfull af skemmtiefni, óvæntum uppákomum og hreint ógurlegri
skemmtun.
En þá er nú komið að aðalefninu, til þess að við getum gert
þetta bekkjarmót að veruleika þurfum við að fá staðfestingu á komu
ykkar með greiðslu til þess að hægt sé að panta bolina,
tóbaksklúta, mat og fleira. Þannig að þeir sem ætla að gleðja okkur
með komu sinni þurfa að greiða 5000 kr inná
reikninginn okkar 1106-26-2006 kt 200681-3639
fyrir 1. maí. Við erum að vona að þetta verði
heildarkostnaðurinn en ef það breytist eitthvað verður það tilkynnt
með fyrirvara síðar. Við getum ekki alveg áætlað fast verð þar sem
við höfum enga tölu í höndunum um hversu margir munu koma og er því
einkar mikilvægt að þeir sem vilja gleðjast með okkur á þessum
tímamótum greiði fyrir 1. maí og erum við að vonast til að allir
sjái sér fært að mæta, það er nefnilega
skyldumæting.... 
Skemmtilegt er fyrir ykkur að vita að við ætlum að byrja
helgina á óvissuferð og byrjar bekkjarmótið formlega kl
16:00, 3. júní í lystigarðinum við gosbrunninn. (Ekki verður
gefið upp meira í þessu bréfi) Áætlað er að hafa makakvöld á
laugardagskvöld.
Þemað fyrir helgina
er ekki alveg komið á hreint. Þannig að ef þið hafið einhverjar
hugmyndir endilega miðlið þeim til okkar, annað hvort á blogginu
eða hringið í okkur. Minnum á blog síðuna sem er:
blog.central.is/argangur81nesk
Notendanafn: allir
Leyninúmer: ár1981
Allir hafa
hér aðgang að síðunni og geta því skrifað inn í dagbókina og sett
inn ýmislegt. Það er farið inn í það með því að fara í vefstjórnun
vinstra megin á síðunni og þá er hægt að gera það sem þið viljið
þar inni. Þeir sem eru klárir í svona hlutum gætu kannski hjálpað
okkur eitthvað með þessa síðu þannig að hægt sé að setja inn myndir
eða skrifað um ykkur, semsagt það sem þið hafið gert eftir
barnaskólann ofl.
Reynið svo að grafa
upp gamlar og skemmtilegar myndir eða jafnvel myndbönd sem hægt
væri að nota í myndasýningu. Ef einhver er klár á tölvu og með
skanna fyrir sunnan þá væri mjög gott ef hann gæti tekið að sér
að skanna inn myndir og senda okkur og gætu þá þeir sem eru
fyrir sunnan leitað til hans með sínar myndir. Það myndi gera
allt mun auðveldara fyrir okkur og ykkur þar sem þið þyrftuð
ekki að senda myndirnar í pósti og sona bras... 
Ef eitthvað er þá bara endilega hafið samband með
því að hringja eða bara senda mail.